Baðþrennan frá Íslenskri hollustu inniheldur salt úr jarðsjó af Reykjanesi, þara úr ómenguðum sjó við strendur Íslands, gosvikur úr Heklu og mýkjandi olíur. Engum ilm- eða litarefnum er bætt í baðþrennuna.
Baðsaltið frá Íslenskri hollustu er hreint Reykjanes-jarðsalt sem inniheldur einstaka náttúrulega blöndu steinefna. Jarðsjórinn er ríkur af söltum og steinefnum sem nauðsynleg eru húðinni til að starfa eðlilega. Þau viðhalda rakajafnvægi húðarinnar, mýkja hana og endurnæra. Steinefnin hafa áhrif á saltbúskap frumanna og gefa þreyttri húð heilbrigðan ljóma. Saltið er þekkt fyrir góð áhrif á húðina. og veitir aukna vellíðan og slökun við böðun. Það er talið hafa græðandi áhrif á húðexem. Saltið er náttúrulegt án ilm- og litarefna og er auðleysanlegt í vatni. Það hentar öllum húðgerðum. Innihald salt-stauksins nægir i tvo til þrjú skipti.
Þara/Salt blandan frá Íslenskri hollustu er úr hreinu Reykjanes-salti, Þara - Laminaria digitata, og mýkjandi vínkjarnaolíu. Þarinn vex í ómenguðum sjó við strendur Íslands. Hann er fínmalaður og leysist upp í heitu vatni. Þarar eru kunnir fyrir að hafa góð áhrif á húðina. Þeir virka mýkjandi og styrkjandi á hana. Slímefni sem þarar gefa frá sér mýkja, slétta og næra húðina, gefa henni raka og fallegt yfirbragð. auk þess sem þau hjálpa til við að styrkja náttúrulegt varnarkerfi hennar og vernda hana. Þara/Saltblandan er án ilm- og litarefna og er auðleysanleg í vatni. Hún hentar öllum húðgerðum. Innihald Þara/Salt-stauksins nægir i tvo til þrjú skipti.
Vikur/Salt blandan frá Íslenskri hollustu er úr hreinu Reykjanes-salti, Hekluvikri, og mýkjandi kókosolíu. Hekluvikur er einstakur. Hann er léttur, holóttur með rjómalit. Þótt hér sé um stein að ræða býr hann yfir furðulegri mýkt. Vikurinn er fínmalaður og leysist upp í heitu vatni. Hann hreinsar og styrkir húðina, fjarlægir dauðar húðfrumur og vinnur gegn siggmyndun. Þara/Saltblandan er án ilm- og litarefna og er auðleysanleg í vatni. Hún hentar öllum húðgerðum. Innihald Vikur/Salt-stauksins nægir i tvo til þrjú skipti.