Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Fjörugrös


Fjörugrös eru náttúrulegt, afar hollt hráefni úr hafinu. Þau eru mjög rík af próteini, A-vítamíni og joði, sem er nauðsynlegt fyrir skjaldkirtilinn. Þau innihalda einnig sykur, sterkju, B1 vítamín, járn, sóda, fosfór, magnesíum, kopar, kalsíum, köfnunarefni, bróm kalíum, klór, brennistein, bór, alúmíníum og snefilefni.

Gott er að sjóða 2 msk af fjörugrösum í 1 ½ dl af vatni í 10 mínútur og nota saman við bollur og buff úr fiski, grænmeti og baunum.

Þegar fjörugrös eru soðin myndast í soðinu sterkt náttúrulegt hleypiefni carrageenan, sem er mikið notað í matvælaiðnaði.


Vörunúmer:
EYFR-011
Framleiðandi:
Eyjólfur Friðgeirsson
Verð:
600 kr
Þyngd:
0


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf