Beltisþarinn hefur frá nátttúrunnar hendi aðeins sætukeim og gott frískandi sjávarbragð. Beltisþari er frábær í hvers kyns fiskisúpur, pottrétti með grænmeti og fiski og með salati. Hann er þurrkaður við lágan hita og verður þá stökkur og bráðnar á tungunni. Vegna lágs hita við verkunina heldur hann öllum sínum náttúrulegu einkennum. Efnainnihald: Auðugur af joði, brómi, próteini og sykri. Inniheldur einnig sterkju, köfnunarefni, vítamín K, B12 og C, natríum, klór, rúbidíum, radíum, kadmínum, kóbalt, bór, mangan, nikkel, glútamínsýruog snefilefni. Í beltisþara eru andoxunarefni og efni sem hreinsa málma og snefilefni úr líkamanum. Ristaður beltisþari er 100% náttúrulegt hollustusnakk. Í honum eru engin aukaefni. Neysla beltisþara getur dregið úr vanliðan vegna neyslu áfengis. Innihald pokans er 50 g.