Jurtate frá Íslenskri hollustu er blandað úr þrem jurtum, sem vaxa villtar hér á landi: Fjallagrösum, birki og hvönn, sem eru allar víðkunnar fyrir heilsusamleg áhrif og lækningamátt. Engum aukaefnum er bætt í blönduna. Fjallagrös eru nærandi, mýkjandi og örvandi fyrir öndunarfæri og meltingarveg. Þau innihalda andoxunarefni og vinna gegn sýkingu. Birkilauf hafa örvandi áhrif á þvagrásina og eru talin vinna gegn þvagsýrugigt og gigt. Hvönn er notuð gegn magakrampa, vindgangi og brjóstsviða. Hún er orkugefandi og örvar starfsemi á mjaðmagrindarsvæðinu. Jurtirnar eru handtíndar á óspilltum svæðum fjarri umferð og ágangi. Pakkinn inniheldur 50 g