Söl eru náttúrulegt, afar hollt hráefni úr hafinu. Þau eru mjög rík af próteini, járni, flúor, A vítamíni, B6 og B12 vítamínum, kalíum, fosfór og joði, sem er nauðsynlegt fyrir starfsemi skjaldkirtilsins. Þau innihalda einnig sykur, sterkju, aminosýrur, E og C vítamín, köfnunarefni, ger, bróm, magnesíum, brennistein, kalsíum, sóda, radíum, rúbidíum, mangan, títan og snefilefni. Góð í súpur, pastarétti og pottrétti. Setjið 1 – 2 msk af sölum í brauðdeigið. Setjið 2 – 3 matskeiðar af sölum á pönnu örstutta stund eða þar til bitarnir eru stökkir. Stráið yfir pasta, súpur, pizzu og salat. Söl er hægt að borða eins og sælgæti. Þeim þarf að halda aðeins rökum til að koma í veg fyrir að þau verði hörð. Í pakkanum eru 20 g.