Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Stórþari (Kelp)


Stórþari gefur góðan kraft í allar grænmetis- og kjötsúpur. Góður í grænmetis-, bauna- og fiskpottrétti. Kryddið gróf matarbrauð með stórþara. Stórþari er mikið nýttur í SA-Asíu og er þekktur og nýttur á Vesturlöndum. Á japönsku heitir hann “kombu” og er seldur á Vesturlöndum undir því nafni.

Stórþari er náttúrulegt, afar hollt hráefni úr hafinu. Hann er ríkur af kalíum og joði, sem er nauðsynlegt fyrir skjaldkirtilinn. Einnig ríkur af kalki, magnesíum, járni og snefilefnum. Hann innheldur einnig prótein, sykur og króm, sem tekur þátt í stýringu á jafnvægi blóðsykurs. Þarinn er ríkur af náttúrulegri glutamatsýru, sem skerpir og dregur fram hið eiginlega bragð hráefnisins á hollan og eðlilegan máta.

Gott er að leggja stórþara í bleyti og sjóða með baunum, þar sem hann glutamatsýran mýkir þær, flýtir fyrir suðu og auðveldar meltingu þeirra. Kryddið má setja í þéttan grisjupoka, tekúlu eða tepoka.


Vörunúmer:
EYFR-005
Framleiðandi:
Eyjólfur Friðgeirsson
Verð:
510 kr
Þyngd:
0


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf