Fasti er gerður út berjahrati og ýmsum jurtum úr íslenskri náttúru, sem allar eru þekktar fyrir læknandi og styrkjandi eiginleika. Jurtirnar eru handtíndar á besta blómatíma sumarsins. Fasti inniheldur: Berjahrat, þurrkuð aðalbláber, birki, fjallagrös, ætihvönn, víði, mjaðjurt og burnirót. Í berjahrati og þurrkuðum aðalbáberjum er mikið af andöxunarefnum og alls konar hollum efnum, sem eru uppistaðan í hollustu berja. Birki er vatnslosandi og græðandi. Fjallagrös og ætihvönn eru græðandi og styrkjandi fyrir ónæmiskerfið, Víðir er sótthreinsandi og verkjastillandi. Mjaðjurt virkar róandi á maga og meltingu. Burnirót hefur verið kölluð ginseng norðursins vegna örvandi áhrifa á heila. Í flöskunni eru 300 ml.