Þessi dúkur er prjónaður eftir danskri uppskrift og heitir „Louise“. Dúkurinn er prjónaður úr fjögurra þátta bómull. Eins og nærri má geta er það mikið verk og vandasamt að prjóna svona dúk. Dúkurinn vegur tæp 400 g og er um 130 cm í þvermál.