Svona hitaplatti vekur athygli fyrir frábæra en einfalda hönnun. Rauðspretturnar eru búnar til úr þæfðri ull frá Ytri Bægisá í Öxnadal. Ullin er lögð út í mörgum lögum,næst efst er sett lag úr rauðri og gulri ull.Þegar rauðsprettan er tilbúin er með skurðarhníf/skærum skorið í hana til að sýna hausinn og "uggana" og svo auðvitað blettina(efsta gráa lagið skorið ofan af). Augun eru stensluð út úr hvítri þæfðri ull og fest með leðurbandi,sem myndar í leiðinni haldið. Þetta er einstök hönnun og hitaplattinn þinn verður aldrei alveg eins og myndinni en afar líkur. Verðið er fyrir einn hitaplatta. Kaupendur sem búa utan Íslands verða að senda tölvupóst til ask@simnet.is til að fá upp flutningskostnað, sem þeir bæta síðan við greiðsluna.