Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Hitaplatti lambagras


Þegar búið er að setja svona hitaplatta á borðið er engu líkara en að þar sé þúfa með lambagrasi.
Hitaplattinn  er búinn til úr þæfðri ull frá Ytri Bægisá í Öxnadal. Ullin er lögð út í mörgum lögum og brún og græn ull þæfð ofan í gráu ullina. Þæft mjög vel til að mottan verði þétt. Eftir hún er búin að þorna eru blómin saumuð í með fjólubláu einbandi.
Þetta er einstök hönnun og hitaplattinn þinn verður aldrei alveg eins og myndinni  en afar líkur. Þvermál plattans er ca. 18 cm.  Athugið að uppgefið verð er fyrir einn hitaplatta.


Vörunúmer:
EJZ-003
Framleiðandi:
Elisabeth Johanna Zitterbart
Verð:
4.725 kr
Þyngd:
100


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf