Ef fólki eru hlýtt á fótunum líður því vel. Náttúruvænni skó - en skóna frá Elisabeth er varla hægt að hugsa sér og þeir halda vel hita á fótum. Skórnir eru búnir til úr þæfðri ull frá Ytri Bægisá í Öxnadal. Elisabeth vinnur ullina sjálf. Hún sér um rúninginn, tekur togið af og tvíkembir síðan þelið. Til að geta búið til réttu stærðina notar hún skómót sem hún fékk hjá skósmið. Skórnir eru þæfðir af miklum krafti, til að ná fram þéttleika,sem skiptir auðvitað máli fyrir endinguna. Í skónum liggur laus aukainnlegg úr þæfðri ull (klippt úr stærra stykki) og kantarnir "overlokkaðir" í vél. Botninn er penslaður með fljótandi latex, sem myndar staman sóla, þegar það þornar. Mynstrið er sett á í lokin með þurrþæfingaaðferð (filtnál). Þetta er einstök hönnun og skórnir þínir verða aldrei alveg eins og myndin en afar líkir.
Skórnir eru fáanlegir í stærðum 36, 37, 38, 39, 40 41 og 42. Kaupendur sem búa utan Íslands verða að senda tölvupóst til ask@simnet.is til að fá upp flutningskostnað, sem þeir bæta síðan við greiðsluna.