Þessir skartgripir eru gerðir úr svokölluðum skartgripaleir sem mótaður er og bakaður í ofni. Sigríður sem er glerlistakona notar þekkingu sína úr þeim geira til að skapa þessum gripum sérstöðu. Hún notar skartgripagler til skreytinga og til að gera gripina líflegri. Hægt er að stækka og minnka hringana. Ef þú ýtir á myndina getur þú flett áfram og skoðað 12 mismunandi tegundir af hringum. Hver mynd er merkt með tölustaf. Þennan tölustaf slærð þú inn þegar þú ert að fara að borga hringinn.