Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Hnakkataska


 Anna Jóhannesdóttirá Hjaltastöðum í Skagafirði framleiðir þessa stóru hnakktösku, sem er úr selskinni og nautsleðri. Taskan er brydduð með hlýraroði. Taskan er sett framan við hnakkinn og fest með nettum lásum í festingar sem eru á flestum hnökkum. Töskurnar eru rúmgóðar og rúma auðveldlega dagsnesti fyrir  fjóra til fimm , ásamt járningaráhöldum og nokkrum skeifum.

 

Töskurnar er hægt að fá merktar með upphafsstöfum eða nafni og kostar merking  kr 410 pr.stafur. Þeir sem vilja fá merkingu verða að skrifa orðið eða stafina í reitinn "annað" sem kemur upp þegar gengið er frá pöntun.

 

 Töskurnar eru yfirleitt til á lager en engar tvær eru eins. Litir og áferð efnis er mjög mismunandi. Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um töskurnar – áður en þeir ganga frá greiðslu – eru beðnir um að hringja í Önnu í síma 453 8229 og 982 8229. 



Vörunúmer:
ANJO-007
Framleiðandi:
Anna Jóhannesdóttir
Verð:
32.400 kr
Þyngd:
100


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf