Mósaíkmynd unnin úr náttúrulegu íslensku grjóti. Myndin er unnin með aldagamalli Rómverskri tækni. Efnið í myndina kemur víða af landinu þó einkum af sunnan- og suðaustanverðu landinu. Myndin er í hvítum ramma. Hver mynd er einstök og engin önnur gerð til að líkjast henni. Til að komast hjá sendingarkostnaði er hægt að afhenda hana beint frá vinnustofu framleiðanda eða skv. öðru samkomulagi. Stærð 20 x 20 cm með ramma. Þyngd um 900 gr án umbúða