Þessi fallega taska er úr ungnautaleðri brydduð með hlýraroði. Taskan er með renndu hólfi og pennageymslu. Breidd töskunnar er 40 cm, hæðin er 31 cm og dýptin er 9,5 cm. Afgreiðslufrestur er ein vika. Þessi taska er einstök, þ.e. útlilokað er að gera aðra nákvæmlega eins. Anna mun hins vegar leggja sig fram til að taskan þín verði afar svipuð. Hvað sem öðru líður þá er ljóst að það fer vel um fartölvuna þína í svona tösku - og auðvitað er hægt að nota töskuna undir hvað sem er. Þetta er taska sem vekur athygli!