Völuspilið kemur í lítilli skjóðu úr sauðsskinni sem lokað er með reim úr hreindýrsleðri og tölu úr beini, horn eða hófi. Í skjóðunni er að finna 5 völur sem notaðar eru til að spila svokallað völuspil. Völuspil hefur verið spilað vítt um heim frá örófi alda. Heimildir eru til um völuspil frá Rómaveldi og Grikklandi til forna, allt frá Rússlandi til Pólynesíu. Svipaðir leikir eru nefndir í Illionskviðu og Odyssseifskviðu Hómers, en líklegast er leikurinn upprunnin í Asíu. Völuspil er spilað á jörðinni úti en á stömu gólfi inni. Notaðar eru fimm völur og er ein, gjarnan öðruvísi lituð, nefnd Gosi. Leikurinn er síðan fólginn í að leysa ýmsar misþungar þrautir en ákveðna færni og þjálfun þarf til að leysa þær. Þátttakendur eru oftast tveir til fjórir en ekkert er því til fyrirstöðu að þeir séu fleiri.