Völuspáin kemur í mjög lítilli skjóðu úr sauðsskinni sem er lokað með reim úr hreindýrsleðri og tölu úr beini, horni eða hófi. Í skjóðunni er að finna eitt hækilbein úr sauðkind, Spávöluna, sem getur gefið svör við hinum ólíklegustu spurningum. Þegar Valan er spurð er hún sett á höfuðið eða nefið og farið með eftirfarandi þulu:
Segðu mér, Vala mín, það sem ég spyr þig að. Ég skal með gullinu gleðja þig og silfrinu seðja þig ef þú segir mér satt. En í keytunni kæfa þig og í eldinum brenna þig ef þú lýgur að mér. Síðan er Valan látin detta og ef kúpan kemur upp segir hún ,,já”, ef holan kemur upp segir hún ,,nei” en ef önnur hvor hliðin kemur upp segir hún ,,ef til vill” eða ,,ég veit það ekki”.