Hver þekkir ekki vandamálið við húfu undir reiðhjólahjálmi. Ólöf Jónsdóttir kjólmeistari hefur leyst þann vanda með þessum eyrnaskjólum. Í eyrnaskjólunum er yfirleitt þæfð ull eða ullarblanda í ytra byrði og flís að innan og síðan er franskur rennilás innan í til að halda þessu saman. Skrautið eru ýmist perlur og steinar eða eitthvað annað skemmtilegt skraut. Ef þú ýtir á myndina getur þú flett áfram og skoðað 20 mismunandi útgáfur af eyrnaskjólunum. Hver mynd (nema sú fremsta) er merkt með tölustaf. Þennan tölustaf slærð þú inn þegar þú ert að fara að borga eyrnaskjólið.