Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Hnakktaska


Anna Jóhannesdóttir á Hjaltastöðum í Skagafirði framleiðir þessa stóru hnakktösku, sem er úr nautsleðri og selskinni brydduð með hlýraroði. Þessar töskur eru festar aftan á hnakkinn og eru með áföstum þar til gerðum ólum sem spennast í festingar sem eru til staðar á flestum hnökkum. Töskurnar eru rúmgóðar og rúma auðveldlega dagsnesti fyrir  fjóra til fimm, ásamt járningaráhöldum og nokkrum skeifum.

Töskurnar er hægt að fá merktar með upphafsstöfum eða nafni og kostar merking  kr 410 pr.stafur. Þeir sem vilja fá merkingu verða að skrifa orðið eða stafina í reitinn "annað" sem kemur upp þegar gengið er frá pöntun.

Töskurnar eru yfirleitt til á lager en engar tvær eru nákvæmlega eins, enda er um handverk að ræða. Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um töskurnar – áður en þeir ganga frá greiðslu – eru beðnir um að hringja í Önnu í síma 453 8229 eða 892 8229.



Vörunúmer:
ANJO-005
Framleiðandi:
Anna Jóhannesdóttir
Verð:
40.500 kr
Þyngd:
100
Vara er væntanleg


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf