Hér hefur á að líta peysu með hestamunstri, sem er komið frá Ístex. Ágústa prjónar svona peysur úr tvöföldum plötulopa. Vinsamlega athugið að þessar peysur eru ekki til á lager. Ágústa prjónar þær eftir pöntun og ef mikið er að gera þá geta liðið tvær til þrjár vikur frá því að pöntun er staðfest þar til peysa er send.