Nafnið álfaskór er þannig tilkomið að ung vinkona Ragnheiðar bað hana um "skó" með uppbrettri tá með bjöllu. Litla stúlkan vildi fá skó sem væru þannig að hún gæti verið í þeim og leikið við köttinn. Skóna fékk hún að sjálfsögðu og nú getur þú eignast álfaskó!
Álfaskór eru prjónaðir úr plötulopa og þæfðir. Ragnheiður velur saman fjóra liti og notar í hvert skópar. Það er ekki hægt að búa til alveg eins skó og eru á myndinni en Ragnheiður leggur sig fram um að líkja eins vel eftir þeim og hægt er.
Athugið að verð á álfaskóm er mishátt eftir því hvort um er að ræða barna- eða fullorðinsstærðir. Stærðir 37 - 48 teljast fullorðinsstærðir. Barnastærð kostar kr. 3.915 en fullorðinsstærð kostar kr. 5.330.