Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Hvert sem ég fer


Jóhann Már Jóhannsson bóndi í Keflavík í Skagafirði hefur nú gefið út fjórðu einsöngsplötuna. Þessi plata – eða diskur – er nokkuð öðru vísi en þeir sem áður hafa komið út með Jóhanni Má. Platan er unnin í samstarfi við tónlistarmanninn Magnús Kjartansson sem sá um upptökur.

Flugfreyjukórinn syngur með Jóhanni Má í tveimur lögum. Félagar úr Karlakórnum Þröstum syngur líka með í jafnmörgum lögum. Á disknum eru 13 einsöngslög, þar af tvö ný lög eftir Magnús sem Jóhann Már frumflytur. Af öðrum lagahöfundum má nefna Geirmund Valtýsson. Þá eru á honum nokkur erlend lög með nýjum textum eftir m.a. Jónas Friðrik og Birgi Marinónsson og nýtt lag um Hofsós eftir Bjarna Þór Pétursson. Draumalandið eftir Sigfús Einarsson er lokalag plötunnar.


Vörunúmer:
JOJO-001
Framleiðandi:
Jóhann Már Jóhannsson
Verð:
2.300 kr
Þyngd:
100


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf