Stilkurinn er renndur úr rekaviði, þar sem trjámaðkur hefur gert sig heimakominn, en að sjáflsögðu eru maðkarnir löngu horfnir á vit feðra sinna. Skermurinn er úr lerki og er renndur svo þunnur að ljós skín í gegn. Pera í lampanum er 7-9 watta köld sparpera. Hæð lampans er 30-35 cm.
Þessi lampi er handverksvara. Það þýðir að það er vonlaust að gera annan sem er nákvæmlega eins og þú sérð á myndinni, en ef þú kaupir svona lampa af Jóni Guðmundssyni mun hann gera allt sem í hans valdi stendur til að lampinn þinn verði áþekkur.