Þessi fallega skál er rennd úr innlendum eða heimaræktuðum viðartegundum. Skálarnar eru límdar saman úr bútum af trjátegundum í ræktun hér á landi og renndar. Trjátegundir eru birki (ljóst), reyniviður (brúnn) selja (ljósgul, rauðleit), gullregn (mosagrænn, dökkbrúnn) gráelri (ljóst). Skálarnar eru baðaðar úr kaldpressaðri línolíu á þær borið vax. Þær eru mismunandi útlits því að misjafnt er hvernig viðarbútum er raðað upp en sömu gæðakröfur eru alltaf gerðar.
Hæð fimm lagaskálarinnar er á bilinu 17 til 19 cm og breiddin á bilinu 29 til 31 cm.