Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Húsdýr


Hestur, kýr, kind, hundur, köttur, svín og húsamús. Efnið er fura og hvert dýr ca. 20 sm á hæð og lengd og rúmir 4 sm á breidd. Sum þó lægri og styttri eftir byggingu hvers og eins. Útlínur sagaðar (eins og horft er á dýrið á hlið) og kantar rúnnaðir. Skorið í hvert dýr en því haldið í lágmarki til að ýta undir hugarflug barnsins. Bæði úti og inni leikfang.

Á dýrin er borin matarolía (kornolía). Það er því allt í lagi þó barn sleiki dýrið, olían er holl og kornolía þránar ekki. Dýrin eru það stór að ekki er hætt við að börn stingi þeim alveg upp í sig. Reynt að hafa sér-íslensk einkenni á dýrunum, t.d. er hundur með hringaða rófu.

Ef keypt er allt settið, þ.e. öll dýrin sjö, færðu það á 6500 kr. eða rétt rúmar 900 kr. fyrir hvert dýr. Veldu dýrið sem þú vilt í felliglugganum hér að neðan.




Vörunúmer:
SIGU-003
Framleiðandi:
Sigurjón Gunnarsson
Verð:
1.950 kr
Þyngd:
100


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf