Myntbudda úr hlýraroði. Buddan heitir því bráðskemmilega nafni Aurasál og er henni lokað með klemmu. Ein myndanna, sem þú getur skoðað af Aurasálinni, útskýrir þetta betur. Stærðin 10 cm x 12 cm. Aurasálinni fylgir heilræði og lukkukróna. Aurasálin þín verður jafn stór og sjá má á myndunum en útlitið er mismunandi - allt veltur á því hvaða efni Sigrún Helga á tiltækt þegar hún býr til nýjar Aurasálir. Hvað sem öðru líður þá getur þú treyst því að fá einstaka vöru!