Kreppupungur er lítil leðurskjóða úr svörtu sauðskinni og rauðu hlýraroði. Stærðin er 8 x 10 cm. Það er gráupplagt að geyma farsíma, kort, smápeninga eða skartgripi í kreppupung. Auk þess má festa punginn við beltið.
Athugið að sumir kreppupungar eru með Ægishjálmi, sem er gamall íslenskur galdrastafur. Þetta er öflugur varnarstafur, sem dugar gegn öllu illu og er örugg vörn gegn reiði og yfirgangi höfðingja. Ægishjálms er getið í Eddukvæðum.
Kreppupungar með Ægishjálmi eru dýrari en pungar án galdrastafsins og kosta kr. 4.499.