Stærð 20,8 x 13,8 cm. Í pakkningu: Munstur og leiðbeiningar. 100 % bómullarstrammi, 100 % íslensk ull og nál Aðferð: Fléttusaumur/gamall krosssaumur.
Byggt á munstri úr sjónabók frá 17. öld sem kennd hefur verið við Ragnheiði Jónsdóttur (1646-1715) biskupsfrú á Hólum í Hjaltadal. Bókin hefur að geyma mörg munstur ætluð til hannyrða og er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands. Hnútar af ýmsum gerðum voru algengir í hannyrðum.