Skaftafellsrósin. Hér færðu plastpoka með handavinnu. 100% bómullarstrammi, 100% íslensk ull. Í pokanum eru leiðbeiningar og munstur, efni, garn og nál. Stærð útsaums: 23 x 23 cm. Aðferð: Fléttusaumur/gamall krosssaumur.
Skaftafellsrósin er byggð á munstri úr sjónabók Jóns Einarssonar bónda og hagleiksmanns í Skaftafelli á 18. öld. Bókin hefur að geyma mörg munstur ætluð til hannyrða og þykir mikil gersemi. Hún er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands. Munstrið er hluti af margbrotinni/þríbrotinni áttblaðarós, afbrigði sem ekki þekkist utan Íslands svo vitað sé.