Salt og piparhorn úr íslensku birki. Stafagerðin er íslensk. Formið vísar til tóbakshorna og saman á Yin og Yang. Hornin eru útskorin og pússuð svo þau minna á tóbakshorn. Eðlilega eru einingarnar tvær; önnur fyrir salt en hin fyrir pipar. Tveir tappar eru á hvorri einingu, annar fyrir áfyllingu og hinn til að strá úr. Á annað hornið er skorið með höfðaletri (sér-íslensk stafagerð) stafurinn S (salt) og á hitt P (pipar). Hornin eru olíuborin. Hornin verða í pappaöskju og mynda saman táknið Yin Yang (andstæður sem mynda jafnvægi og fullkomna hvort annað) og passa þá stafirnir S og P, þ.e. snúa rétt.
Hvert sett er sérstakt því engin tvö eru nákvæmlega eins, en Sigurjón mun reyna eftir megni að líkja eftir hornunum á meðfylgjandi mynd. Lengd milli tappa er c.a. 10 sm. Þykkt tæpir 2 sm. Neðangreint verð er miðað við eitt sett.