Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Vefverslun

Peysufatakona


Peysufatakonur Sigurjóns Gunnarssonar eru úr íslensku birki sem er rennt og skorið. Undir pilsi er nálapúði. Höfuð og háls mynda tappa yfir hólfi sem ætlað er fyrir nálar (nálhús). Skotthúfan er máluð með lakki og skúfur úr grönnu garni. Vírvafningur efst og utan um skúfinn er stálþráður sem er stílfæring á hólk sem gjarnan var á skotthúfunni. Svunta er skorin (tréskurður) í viðinn og eins stílfærð slaufa, stór, fyrir ofan. Viðurinn er olíuborinn.

Hver peysufatakona er einstök - engar tvær eru eins. Hæð er á bilinu 20 – 25 cm og breidd 5-7 cm. Peysufatakonan er úr íslensku efni, formið er stílfært en þjóðlegt með notagildi að leiðarljósi.

Sigurjón mun leggja sig allan fram um að hafa peysufatakonuna þína sem líkasta þeirri sem er á myndinni. Neðangreint verð er miðað við eitt stykki.  


Vörunúmer:
SIGU-001
Framleiðandi:
Sigurjón Gunnarsson
Verð:
6.500 kr
Þyngd:
100


Vörur frá framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf