Þetta spil varð til þegar ég bjó á Ítalíu og var með börnin mín tvö, þá tveggja- og fjögurra ára. Mér varð hugsað til æskuleikja í snjónum, vetraleikja krakkanna heima á Íslandi og teiknaði upp spil með litlum ævintýrum og vatnslitaði það. Heimurinn var gerður fyrir litlar mýs sem ég hafði leirað handa börnunum. Krakkarnir lifðu sig algerlega inn í spilið og það varð mjög vinsælt hjá okkur. Er krakkarnir urðu eldri hreif spilið alla vini þeirra og ég ákvað að láta steypa mýsnar úr málmblöndu, handmála þær og gefa spilið út til að aðrir gætu notið rólegheitanna heima á eldhúsborði með fjölskyldunni.
Það eru gömlu einföldu gildin, að gleðjast yfir litlum hlutum og litlum einföldum skemmtunum sem eru ríkjandi í þessu teningaspili.
(Spilið hefur einnig uppeldislegt gildi því að krakkarnir fá að hafa þunga litla hluti í höndunum, sem eru handmálaðir og fallegir og hafa því meira gildi en algegnt fjöldaframleitt dót.)
Mýsnar hafa verið mikið notaðar á mínu heimili í dúkkuhúsaleikjum og eru líka gullfallegir handmálaðir munir á hilluna.
4 litlar handmálaðar mýs fylgja, tvær stelpur og tveir strákar og einn teningur.