Þessi fallega skál er rennd úr innlendum eða heimaræktuðum viðartegundum. Skálarnar eru límdar saman úr bútum af trjátegundum sem eru í ræktun hér á landi og renndar. Trjátegundir eru birki (ljóst), reyniviður (brúnn) selja (ljósgul, rauðleit), gullregn (mosagrænn, dökkbrúnn) gráelri (ljóst). Skálarnar eru baðaðar úr kaldpressaðri línolíu og á þær borið vax. Þær eru mismunandi útlits því að misjafnt er hvernig viðarbútum er raðað upp en sömu gæðakröfur eru alltaf gerðar.
Hæð fjögra lagaskálarinnar er á bilinu 13 til 14 cm og breiddin á bilinu 27 til 30 cm.
Þessar skálar eru eru handverk. Engar tvær skálar eru nákvæmlega eins.