Taska prjónuð úr blágrænum plötulopa, þæfð og skreytt með rauðu glansandi karfaroði og hnútum. Talan er úr enda lambshorns. Taskan er fóðruð með samlitu fóðri. Einn vasi á fóðrinu.
Athugið að töskur handverksmanna eru einstakar, þ.e. það er illmögulegt að framleiða fleiri sem eru nákvæmlega eins. Ragnheiður mun gera hvað hún getur til að taskan þín verði sem líkust þessari!