Grá, skreytt Hjálma. Hjálmana má aðeins handþvo. Íslensk ull. Húfan Hjálma sækir fyrirmynd sína í fornan stíl og stuðst er að nokkru við lagið á hjálmum víkinga. Hjálma er þæfð úr íslenskri ullarkembu. Hjálma er vendiflík, tvílit og hægt að nota hana á hvorn veginn sem er. Hún er vatnsheld en það gerir togið í íslensku ullinni. Hjálma er mjög hlý og andar svo lítil hætta er á að svitna undir henni.