Framan á húfunni Hjálmu er Ægisskjöldur sem forðar eiganda sínum frá háska. Hjálma er handunnin. Aðeins má þvo Hjálmu í höndum.
Húfan Hjálma sækir fyrirmynd sína í fornan stíl og stuðst er að nokkru við lagið á hjálmum víkinga. Hjálma er þæfð ú ríslenskri ullarkembu með fornum verndarstaf frá heiðni. Verndarstafurinn Ægishjálmur eða Ægisskjöldur er stunginn (Prikklaður) í húfuna með ullarnál og síðan þæfður í. Hjálma er vendiflík, tvílit og hægt að nota hana á hvorn veginn sem er. Hún er vatnsheld en það gerir togið í íslensku ullinni. Hjálma er mjög hlý og andar svo lítil hætta er á að svitna undir henni.