Tannstönglaboxin frá Guðrúnu eru einstök. Tannstönglaboxið er búið til úr kýrlegg. Þetta er endi af kýrlegg, neðan við hné. Annar hvítur en hinn litaður brúnn með náttúrulegum lit. Uppgefið verð er fyrir eitt stykki.
Varan sem þú kaupir verður ekki eins og á myndinni en eins lík og handverksmaðurinn getur gert með góðu móti. Hvað sem öðru líður þá getur þú treyst því að fá einstaka vöru! Enginn annar getur státað sig af nákvæmlega eins grip!