Það eru ekki margir sem eiga smjörhníf sem er unninn úr kýrhorni og soðinn í olíu! Þegar því verki lýkur er hornið pressað slétt, síðan skorið til og pússað í fína áferð. Litur og lögun eru aldrei eins vegna þess að efnið er svo ólíkt frá einu horni til annars. Hinu getur þú treyst að það er gott að smyrja með hnífnum - og þá ekki síst ef notað er íslenskt gæðasmjör.
Varan sem þú kaupir verður ekki eins og á myndinni en eins lík og handverksmaðurinn getur gert með góðu móti. Hvað sem öðru líður þá getur þú treyst því að fá einstaka vöru! Enginn annar getur státað sig af nákvæmlega eins grip!