Hálsmen úr hvalbeini. Ólin er úr leðri eða gúmmíi. Þetta hálsmen er unnið úr hvalbeini sem rak á land austur á Melrakkasléttu. Varan sem þú kaupir verður ekki eins og á myndinni en eins lík og handverksmaðurinn getur gert með góðu móti. Hvað sem öðru líður þá getur þú treyst því að fá einstaka vöru! Enginn annar getur státað sig af nákvæmlega eins grip!