Hálsmen úr kindahorni. Horn af dökkum kindum eru svört en hvítar kindur eru með hvít eða ljós horn. Yfirborðið á meninu er óslétt og rákirnar eru mjög sérstakar. Þær setja sterkan svip á gripina. Varan sem þú kaupir verður ekki eins og á myndinni en eins svipað og handverksmaðurinn getur með góðu móti. Hvað sem öðru líður þá getur þú treyst því að fá einstaka vöru! Enginn annar getur státað sig af nákvæmlega eins grip!